Sarah Palin stofnar fréttastofu

Sarah Palin.
Sarah Palin. AFP

Sarah Palin ætlar að stofna eigin fréttastofu á netinu. Varaforsetaframbjóðandinn fyrrverandi segist ætla að bjóða áhorfendum val á móti „pólitískum rétttrúnaði“ annarra miðla, segir í frétt CNN um málið.

„Ertu þreyttur á fjölmiðlasíunni? Ég er það,“ segir hún í kynningarmyndbandi. „Ég vil tala beint við þig á okkar miðli, á mínum forsendum.“

Fréttaveita Söruh Palin mun rukka áhorfendur sína um 9,95 Bandaríkjadali á mánuði í áskriftargjöld. Þeir sem starfa hjá hernum fá ókeypis áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert