Átök stöðva rannsókn á MH17

Mikil átök eru í kringum flakið af MH17
Mikil átök eru í kringum flakið af MH17 AFP

Átök milli úkraínska hersins og uppreisnarmanna hliðhollum Rússum hafa gert það að verkum að hollenskir og ástralskir rannsóknarmenn hafa ekki getað komist að flaki MH17. Þetta kemur frá í yfirlýsingu frá hollenska varnarmálaráðuneytinu.

Hollendingar voru í síðustu viku að velta upp þeim möguleika að senda hollenskar hersveitir til austurhluta Úkraínu til að tryggja svæðið í kringum flakið, en langflestir farþegar í vélinni voru Hollendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert