Talið er að 150 manns séu fastir í húsum sínum eftir að skriða féll á þorp í vesturhluta Indlands í morgun. Mikið hefur rignt á svæðinu að undanförnu.
Aurskriðan féll á þorpið Malin. Talið er að hún hafi fallið á hátt í 50 hús. Björgunarfólk er nú á leið á staðinn og hafa vinnuvélar verið sendar á vettvang. Þá eru þrjátíu sjúkrabílar á leið til Malin.