Henti ungbarni út um bílglugga

mbl.is

Karlmaður í Flórída hefur verið dæmdur fyrir morð en hann henti þriggja mánaða gömlum dreng út um glugga á bíl sem var á ferð. Barnið er talið hafa látist samstundis.

Maðurinn er 26 ára. Samkvæmt gögnum málsins réðst hann á fyrrverandi kærustu sína er hún kom heim eftir að hafa verið í heimsókn hjá vinum. Þetta var árið 2009.

Maðurinn greip son konunnar í átökunum, fór með hann út í bíl og ók af stað eftir hraðbrautinni. Hann henti svo barninu út um gluggann. 

Lögmaður mannsins sagði hann saklausan. Lögreglan fann þó blóð í bíl mannsins sem og á fötum hans. 

Kviðdómur sem dæmdi í málinu tók sér sjö klukkustundir í að komast að niðurstöðu. Á mánudag mun kviðdómurinn aftur koma saman til að ákveða refsingu mannsins.

Maðurinn fer að öllum líkindum í lífstíðarfangelsi en þó kemur til greina að hann verði dæmdur til dauða, segir í frétt AP-fréttastofunnar um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert