Móðgaði tælensku konungsfjölskylduna

Það þarf að gæta þess að móðga ekki konungsfjölskylduna í …
Það þarf að gæta þess að móðga ekki konungsfjölskylduna í Tælandi. AFP

Tælenskur tónlistarmaður var í morgun dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrir ærumeiðingar í garð konungsfjölskyldunnar í landinu.

Maðurinn, sem er 28 ára, var fundinn sekur um að hafa skilið eftir móðgandi skilaboð um konungsfjölskylduna á Facebook á árunum 2010 og 2011. Ekki komu fram nánari upplýsingar um skilaboðin í dómnum.

Bhumibol Adulyadej, konungur Tælands, er 86 ára. Landmenn bera margir hverjir mikla virðingu fyrir honum. Þeir sem gerast sekir um að móða konunginn, drottninguna eða einhvern annan úr hirðinni, geta átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi fyrir hvert brot.

Tónlistarmaðurinn var fundinn sekur um 21 brot. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert