Brantly með ebólu til Bandaríkjanna

Kent Brantly.
Kent Brantly. AFP

Ebólu-veiran hefur nú í fyrsta skipti komið til Bandaríkjanna svo vitað sé. Það gerðist þegar einkaþota með tvo sýkta heilbrigðisstarfsmenn, lækninn Kent Brantly og hjúkrunarkonunan Nancy Writbol, lenti í Bandaríkjunum.

Þotan lenti 15:50 á Dobbins herflugvellinum í Atlanta að íslenskum tíma, en þotan hafði verið sérútbúin til að koma í veg fyrir að ebólu-veiran gæti smitast áfram.

Á myndskeiði sem var tekið úr fjarska sést þotan aka inn í flugskýli, þar sem sjúkrabíll og fylgdarlið bíða hennar. Sjúklingunum var svo ekið á einangrunardeild Emory háskólasjúkrahússins í Atlanta. Margar bandarískar sjónvarpsstöðvar sýndu beint frá því þegar sjúkrabíllinn ók frá flugvellinum að sjúkrahúsinu.

Mál þeirra hefur vakið mikla athygli eftir að Brantly óskaði þess að Write­bole fengi eina skammtinn sem til var af bóluefni frek­ar en hann. 

Þau verða lögð inn á Emory háskólasjúkrahúsið í Atlanta í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum síðar í dag. „Góðu fréttirnar eru að flugvélin er komin í loftið. Ekki er þó vitað hvenær hún lendir,“ sagði Bruce Johnson, stjórnandi samtakanna. „Það er hughreystandi að vita að annað þeirra sé nú á leiðinni.“

Að minnsta kosti 729 manns hafa látist af völdum veirunnar frá því í mars.

Hin banvæna ebóla er sú veira sem er hvað hættulegust …
Hin banvæna ebóla er sú veira sem er hvað hættulegust manninum. AFP
Ebóla - Skólum verður lokað í Líberíu til að koma …
Ebóla - Skólum verður lokað í Líberíu til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert