Fjallgöngumennirnir fundust látnir

Fjallgöngumenn í Mont Blanc fjallinu
Fjallgöngumenn í Mont Blanc fjallinu AFP

Lík tveggja belgískra fjallgöngumanna fundust á Mont Blanc fjallinu í Frakklandi í dag eftir tveggja daga leit. Mennirnir féllrau niður við grjót- og ísfall í fjallinu.

Þeir fundust grafnir undir miklu magni af grjóti og klaka. Mennirnir sem voru á sextugsaldri týndust á fimmtudag þegar þeir voru á leið í skýli í miðju fjallinu sem er það hæsta í Frakklandi.

Björgunarsveitir hafa leitað í fjallinu síðan en þyrluflugmenn komu í dag loks auga á bakpoka annars mannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert