Breti greinist með ebólu í Síerra Leóne

Breskur ríkisborgari sem búsettur er í Síerra Leóne hefur nú …
Breskur ríkisborgari sem búsettur er í Síerra Leóne hefur nú verið greindur með ebólu. AFP

Breskur ríkisborgari sem búsettur er í Síerra Leóne hefur nú verið greindur með ebólu. Maðurinn fær viðeigandi læknisaðstoð en ekki hefur verið greint frá nafni hans.

Að sögn John Watson, prófessors hjá heilbrigðisráðuneytinu í Bretlandi eru enn afar litlar líkur á að fólk búsett í Bretlandi smitist af veirunni.

1.427 manns hafa látið lífið úr Ebólu frá því að faraldurinn hófst í mars síðastliðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert