Hálshöggvinn fyrir að aka yfir mann

Deera torgið í borginni Riyadh hefur oft verið vettvangur fullnustu …
Deera torgið í borginni Riyadh hefur oft verið vettvangur fullnustu dauðarefsinga, þar sem fólk var hálshöggvið fyrir allra augum. Ljósmynd/Wikipedia

Sádi-Arabískur maður var hálshöggvinn í Qatif héraði landsins í dag fyrir morð. Maðurinn var sakfelldur fyrir að myrða annan með því að keyra yfir hann í kjölfar rifrildis samkvæmt SPA fréttaveitu landsins.

Mannréttindasamtök hafa lýst yfir miklum áhyggjum vegna sífelldrar aukningar í notkun dauðarefsinga í landinu, en nítján voru hálshöggnir milli 4. og 20. ágúst. Dauðarefsing liggur við glæpum á borð við nauðgun, morð, vopnuð rán, fíkniefnasmygl og trúvillu í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert