88 ára maður fannst á lífi eftir 4 daga leit

88 ára gamall maður sem leitað hefur verið að í Noregi í fjóra daga fannst á lífi í kvöld. Ekkert amaði að honum þegar hann fannst. Um 60 manns tóku þátt í leitinni.

Maðurinn og eiginkona hans voru saman í sumarhúsi í Sauherda-fjöllum í vikunni. Maðurinn fór í gönguferð, en þegar hann snéri ekki til baka óskaði kona hans eftir aðstoð. Fjöldi manns með leitarhunda hafa leitað mannsins í fjóra sólarhringa. Notast var við þyrlu og kafarar höfðu leitað í vötnum á svæðinu. Í kvöld fannst maðurinn. Hann er á lífi að sögn lögreglu og við góða heilsu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert