Handtökuskipin gefin út á hendur foreldra Ashya

Naghemeh King og Brett King foreldrar Ashya King.
Naghemeh King og Brett King foreldrar Ashya King. -

Breska lögreglan hefur gefið út handtökuskipan á hendur foreldra Ashya King, fimm ára drengs sem er alvarlega veikur. Foreldrar hans fóru með hann af spítala í Southampton sl. þriðjudag. Ashya er með heilaæxli.

Lögreglu grunar að foreldrarnir hafi farið með drenginn yfir Ermasundið með ferju sama dag og hann hvarf. Fjölskyldan á íbúð á Spáni og hefur lögreglan leitað drengsins þar, en hann hefur ekki fundist.

Lögreglan sagði í dag að hún teldi að foreldrarnir hefðu tryggt að drengurinn fengi næringu. Ashya fór í stóra aðgerð fyrir stuttu. Hann getur ekki tjáð sig með orðum og er lamaður.

Birtar hafa verið myndir af föður drengsins fara út með hann af sjúkrahúsinu í Southampton.

Breska lögreglan hefur dreift myndum af drengnum, Ashya King, á …
Breska lögreglan hefur dreift myndum af drengnum, Ashya King, á samfélagsmiðlum í þeirri von að hann finnist sem fyrst. Breska lögreglan á Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert