Stakk átta börn og kennara

Þrjú barnanna sem stungin voru eru látin af áverkunum sem …
Þrjú barnanna sem stungin voru eru látin af áverkunum sem þau hlutu í árásinni. AFP

Maður stakk átta börn og kennara þegar hann gekk berserksgang í kínverskum grunnskóla í morgun. Þrjú barnanna eru látin vegna áverkanna sem þau hlutu. Maðurinn framdi þar næst sjálfvíg, en hann stökk fram af byggingu.

Að sögn mannsins kom árásin til þar sem hann gat ekki skráð barn sitt í skólann. Hugsanlegt er talið að fleiri börn hafi látið lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert