Yfir 100 látnir í flóðum

Yfir eitt hundrað hafa látist í úrhellisrigningu í Pakistan undanfarna þrjá daga. Þúsundir heimila hafa skemmst og hafa yfirvöld sett fjögur héruð á rautt hættustig.

Flestir þeirra 106 sem hafa látist hafa dáið er þök hafa hrunið, vegna raflosts og aurskriða í Punjab og Kasmír héraði.

Alls hafa 55 látist í Punjab héraði og 235 hafa slasast í óveðrinu. Þar hefur heldur dregið úr úrkomunni í dag og vatn tekið að sjatna á ýmsum stöðum.

AFP
AFP
T
T AFP
AFP
AFP
AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert