Liðsmenn Ríkis íslams yfir 30.000

Kúrdískir hermenn hafa barist við liðsmenn íslömsku samtakanna í norðurhluta …
Kúrdískir hermenn hafa barist við liðsmenn íslömsku samtakanna í norðurhluta Íraks. AFP

Bandaríska leyniþjónustan (CIA) segir að liðsmenn samtaka íslamista, Ríkis Íslam, séu mögulega 31.000 talsins í Írak og í Sýrlandi. Það eru þrefalt fleiri en menn töldu í upphafi.

Talsmaður CIA segir nýja matið byggja á upplýsingum sem hafa borist frá starsfmönnum leyniþjónustunnar frá maí til ágúst, að því er segir á vef BBC.

Ríki íslams hefur náð stórum landsvæðum í Írak undir sig og þá hafa liðsmenn samtakanna hálshöggvið nokkra gísla á undanförnum mánuðum. Það varð til þess að bandarísk stjórnvöld ákváðu að gera loftárásir á liðsmenn samtakanna í Írak. 

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú staddur í opinberri heimsókn í Tyrklandi. Þar mun hann óska eftir stuðningi Tyrkja í baráttunni gegn samtökunum. 

Haft er eftir bandarískum embættismönnum, að hershöfðinginn John Allen, sem er kominn á eftirlaun, muni fá það verkefni að setja saman alþjóðlegt bandalag sem mun hafa það hlutverk að berjast geng Ríki íslam.

Í gær höfðu 10 arabaríki lýst því yfir að þau væru reiðubúin að aðstoða Bandaríkin í aðgerðum sínum gegn samtökunum, bæði í Írak og í Sýrlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert