Lík tveggja breskra ferðamanna fundust á taílenskri strönd í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var fólkið, karl og kona, nakið og er málið rannsakað sem morðmál.
Ekki hefur verið upplýst nánar hvaða fólk er um að ræða annað en þau hafi bæði verið 24 ára gömul. Lík þeirra fundust nálægt ferðamannakofum á ströndinni á Koh Tao-eyju.
„Þau voru myrt og fundust nakin á ströndinni,“ segir lögreglan, en hún fékk upplýsingar um líkfundinn klukkan 6.30 að staðartíma, klukkan 23.30 að íslenskum tíma. Líkin fundust í um 30 metra fjarlægð frá gististaðnum á ströndinni en parið kom til Taílands 25. ágúst sl.
Lögregla leitar vitna og vísbendinga um hvers vegna fólkið var myrt en að sögn starfsmanns á gististaðnum sem það gisti á hefur ekkert slíkt gerst áður á þessum slóðum.