Fá aukna sjálfstjórn og sakaruppgjöf

AFP

Úkraínska þingið hefur samþykkt ný lög sem mun auka sjálfstjórn héraða í austurhluta landsins sem eru undir stjórn aðskilnaðarsinna. Þá hefur þingið veitt þeim sem hafa barist í stríðinu almenna sakaruppgjöf.

Aðgerðirnar eru í samræmi við vopnahléssamkomulag sem var undirritað 5. september sl. af þeim Vladimír Pútín Rússlandsforseta, og Petro Porosénkó, forseta Úkraínu.

Sakaruppgjöfin nær til aðskilnaðarsinna í héruðunum Donetsk og Lúgansk. Hún tekur hins vegar ekki til þeirra sem bera ábyrgð á því að malasísk farþegaflugvél var skotin niður í júlí sl. 

Þá hefur Evrópuþingið og úkraínska þingið samþykkt að staðfesta samstarfssamning Úkraínu og ESB, sem er sagður marka tímamót.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert