Flóttamönnum drekkt í Miðjarðarhafi

AFP

Eftirlifendur eins mannsskæðasta skipbrots síðari ára hafa nú stigið fram og lýst því hvernig smyglarar hvolfdu bát þeirra og skildu þá eftir til að drukkna. Hátt í fimm hundruð flóttamenn fórust með bátnum á miðvikudaginn undan ströndum Möltu, þar af hátt í hundrað börn, en förinni var heitið frá Egyptalandi til Ítalíu. Þetta kemur fram í upplýsingum IOM, stofn­un Sam­einuðu þjóðanna sem fylg­ist með flótta fólks í leit að betri lífs­kjör­um, sem birtar voru í dag.  

„Eftir að þeir sigldu á bát okkar biðu þeir hlæjandi eftir því að vera fullvissir um að báturinn hefði örugglega sokkið,“ hefur IOM eftir einu fórnarlambinu.

Í upplýsingum IOM kemur meðal annars fram að níu einstaklingar hafi fundist, þemur dögum eftir atburðinn, hangandi á baujum úti á rúmsjó. Á meðal nímenninganna var tveggja ára stúlka, sem er enn í lífshættulegu ástandi á sjúkrahúsi á Krít, en einn nímenninganna hefur nú þegar látið lífið á sjúkrahúsi. Tveir Palestínumenn voru í hópi eftirlifenda og tjáðu þeir að báti þeirra hefði verið sökkt eftir að flóttamennirnir neituðu að færa sig yfir í smærri bát.

Hengdi sig í örvæntingu

Smyglararnir, sem taldir eru hafa verið tíu talsins og frá Egyptalandi og Pelestínu, sigldu bát flóttamannanna niður en þeir sem náðu að bjarga sér yfir í smærri bátinn áttu sér einskis von þar sem þeir voru aftur neyddir í sjóinn og skildir eftir.

„Þegar siglt var á bátinn í fyrsta skiptið hengdi einn flóttamaðurinn sig í örvæntingu sinni,“ er haft eftir einu fórnarlambinu. Flóttamennirnir komu aðallega frá Sýrlandi, Palestínu, Egyptalandi og Súdan og höfðu húkt í átján metra löngum bátnum frá því 6. september, þrjú hundruð í þilfarinu og tvö hundruð undir berum himni.

„Hundruðin sem voru í þilfarinu lokuðust inni og drukknuðu samstundis. Eftirlifendurnir kveðast hafa horft upp á fólkið sem var ofar í bátnum, eða hafði komist yfir í smærri bátinn, vera hent í sjóinn þar sem það ríghélt í hvort annað til að halda lífi,“ segir auk þess í upplýsingum IOM. 

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert