Obama fagnaði úrslitunum

Barack Obama Bandaríkjaforseti.
Barack Obama Bandaríkjaforseti. AFP

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna óskaði Skotlandi til hamingju með sína „rækilegu og orkumiklu notkun á lýðræði,“ í dag. Obama fagnaði úrslitum þessara sögulegu kosninga þar sem Skotland hafnaði sjálfstæði frá Stóra Bretlandi. 

„Það er engin þjóð meiri bandamaður okkar en Stóra Bretland og við hlökkum til þess að viðhalda okkar sterka og sérstaka sambandi við íbúa þess,“ sagði Obama m.a. í yfirlýsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert