Krukkur, flöskur og jafnvel pítsukassar, allt úr ruslatunnum héðan og þaðan í Kólumbíu. Fjórar hljómsveitir stigu á stokk á tónlistarhátíðinni RSFEST2014 Sonorities Recycling Festival í borginni Cali í dag.
Öll hljóðfærin voru meira og minna smíðuð úr ruslinu og fengu hlutirnir þannig nýtt hlutverk.