Barði 2 ára dóttur sína til dauða

AFP

Lögreglan í El Paso í Texas í Bandaríkjunum hefur ákært hermann fyrir morð af yfirlögðu ráði eftir að hann barði 2 ára gamla dóttur sína til dauða. Samkvæmt lögreglunni hafði maðurinn komist í uppnám eftir að dóttir hans óhreinkaði bleyju sína. Þetta kemur fram á fréttaveitu CBS.

Maðurinn, sem heitir Dartarious Graham og er 20 ára gamall, var handtekinn í gær. Samkvæmt lögreglunni er Graham sérfræðingur í bandaríska hernum.

Maðurinn barði dóttur sína, Peyton Graham, með belti. Slökkviliðsmenn sem voru fyrstir á vettvang fundu Graham meðvitundarlausa og var hún færð á sjúkrahús þar sem hún síðar lést.

Móðir barnsins og frænka mannsins voru einnig báðar ákærðar fyrir vanrækslu á barninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert