Telja sig hafa fundið lík mannsins

Frá Rochdale í Bretlandi.
Frá Rochdale í Bretlandi. Wikipedia

Talið er hugsanlegt að búið sé að finna lík þrítugs manns sem hefur verið saknað frá því í júlí á þessu ári. Fótleggur fannst í Rochdale í Manchester um helgina og fannst líkið í kjölfarið. Líkið var illa farið og ekki hægt að greina kyn eða hugsanlega aldurs.

Lögregla telur að líkið hafi verið á svæðinu í nokkurn tíma. Heath Nield hvarf frá heimili sínu í júlí á þessu ári. Gera þarf frekari rannsóknir á líkinu svo hægt verði að bera kennsl á hinn látna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert