Talinn hafa nauðgað eldri konu

Lögregla mun ræða við konuna í dag en unnið var …
Lögregla mun ræða við konuna í dag en unnið var að rannsókn málsins á heimili hennar í gær. Wikipedia

Unglingur var handtekinn í Felixstowe á Bretlandi eftir hádegi í gær, grunaður um að hafa nauðgað eldri konu á heimili hennar. Hann var yfirheyrður í gær.

Konan hafði samband við lögreglu snemma um morguninn. Hún sagði að henni hefði verið nauðgað af manni sem braust inn á heimili hennar. Konan var flutt á sjúkrahús í Ipswich þar sem hlúð var að henni.

Lögregla mun ræða við konuna í dag en unnið var að rannsókn málsins á heimili hennar í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert