Unaður breyttist í óhugnað

Það getur ekki talist vera góð hugmynd að nota sléttujárn …
Það getur ekki talist vera góð hugmynd að nota sléttujárn í þessum tilgangi. .

Nítján ára gömul norsk stúlka hlaut alvarleg brunasár þegar hún greip sléttujárn í misgripum þegar hún ætlaði að eiga unaðsstund með sjálfri sér sl. föstudagskvöld í Larvík í Noregi.

Fram kemur í norskum fjölmiðlum að stúlkan hafi verið undir áhrifum áfengis og ætlaði hún að nota hjálpartæki ástalífsins til að veita sjálfri sér unað. Hún gerði sér ekki grein fyrir mistökum sínum fyrr en of seint, en sléttujárnið var í sambandi og varð þar af leiðandi mjög heitt. 

Nágrönnum stúlkunnar brá mjög þegar þeir heyrðu öskur koma frá íbúðinni og var haft samband við neyðarlínuna.

Stúlkan var flutt á sjúkrahús þar sem kom í ljós að hún hlaut þriðja stigs brunasár í móðurlífinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert