44 þúsund börn voru send snemma heim úr skólum í borginni Hamamatsu í Japan í dag þegar 101 grunnskóla var lokað vegna sprengjuhótunar.
Sprengjuhótunin barst í gegnum síma en maður, sem hafði samband, sagðist hafa komið sprengju fyrir í grunnskóla í borginni. Nemendur voru sendir heim og lögreglumenn munu kanna alla skólana.