Ungu konunni var nauðgað fyrir morðið

Hannah Witheridge og David Miller voru myrt fyrir þremur vikum …
Hannah Witheridge og David Miller voru myrt fyrir þremur vikum á eyjunni Koh Tao á Tælandi. AFP

Lögregla á Taílandi telur að Hönnu Witheridge, 23 ára breskri konu, hafi verið nauðgað af tveimur mönnum sem hafi síðan drepið hana. Þriðji maðurinn stóð og fylgdist með. Lík hennar og David Miller, 24 ára Breta, fundust á strönd á tælensku eyjunni Koh Tao fyrr í þessum mánuði.

Lögregla telur að góðar líkur séu á því að finna þá sem grunaðir eru í málinu, en þó eru liðnar um þrjár vikur frá morðunum. Lífsýni tveggja manna fundust á líki konunnar.

Miller var drekkt og var hann þar að auki skotinn í höfuðið. Witheridge lést aftur á móti af völdum höfuðáverka aðfaranótt 15. september.

Lögregla hefur farið víða í rannsókn sinni á málinu. Meðal annars hefur 200 lífsýnum verið safnað, en sýnin eru af fólki á eyjunni. Von er á niðurstöðum síðar í vikunni.

Átta tælenskir fótboltamenn veittu lífssýni vegna málsins. Þeir með partí á sama skemmtistað og unga fólkið dvaldi á sama kvöld og þau voru myrt og hafa þeir meðal annars verið yfirheyrðir vegna málsins.

Frétt Sky-fréttastofunnar. 

200 lífssýnum var safnað vegna rannsóknar málsins.
200 lífssýnum var safnað vegna rannsóknar málsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert