Játar að hafa myrt ferðamennina

Hannah Witheridge og David Miller.
Hannah Witheridge og David Miller. AFP

Búrmískur karlmaður hefur játað að hafa myrt bresku bakpokaferðalangana Hönnuh Witheridge og David Miller á Taílandi.

Miller var 24 ára og Witheridge 23. Lík þeirra fundust á strönd á eyjunni Koh Tao, í nágrenni staðarins þar sem þau gistu snemma dags 15. september.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar segir að þrír menn frá Búrma hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Einn þeirra hefur nú játað að hafa myrt fólkið.

Frétt mbl.is:

Boða handtökur fljótlega

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert