Dómur yfir Michael Dunn, sem var ákærður fyrir að skjóta þeldökkan 17 ára dreng til bana á bílastæði árið 2012, var kveðinn í dag. Dunn var dæmdur sekur fyrir morð af fyrstu gráðu af kviðdómi í Jacksonville í Flórída. CNN greinir frá þessu í dag.
Eins og mbl.is sagði frá fyrr á þessu ári stoppaði Dunn bíl sinn við bensínstöð í Jacksonville þann 23. nóvember 2012. Þar var fyrir hópur af ungmennum sem spiluðu háa tónlist úr bíl sínum.
Dunn sagði við réttarhöldin að hann hefði beðið ungmennin að lækka í tónlistinni sem Dunn taldi of háværa. Þau neituðu og rifu kjaft við hann. Hann segist hafa óttast um líf sitt þegar ungmennin fóru út úr bifreið sinni og gengu til hans. Sótti hann skammbyssu sem hann geymdi í hanskahólfi bifreiðar sinnar og skaut í átt að þeim.
Að sögn Dunn hélt hann áfram að skjóta eftir að bifreið ungmennanna var ekið af stað þar sem hann hafi óttast um líf sitt og unnustu sinnar. Var hún þó ekki í bílnum þegar Dunn skaut heldur inni á bensínstöðinni.
Við rannsókn málsins fann lögregla ekkert sem benti til þess að ungmennin hefðu verið vopnuð og þau neituðu því við yfirheyrslur að hafa ógnað Dunn.
Dunn skaut tíu skotum að bíl unglinganna og þrjú þeirra hæfðu drenginn sem lést. Dunn segir að hann hafi ekki haft hugmynd um að hann hefði skotið drenginn, Jordan Davis, fyrr en hann sá fréttirnar þegar hann kom upp á hótel.
Fyrir utan réttarsalinn sagðist móðir Davis vera þakklát fyrir dóminn. Sagði hún hann tákna réttlæti en ekki aðeins fyrir son sinn. „Líka fyrir Trayvon og öll nafnlausu andlitin og þá sem fá aldrei rödd,“ sagði hún og var þá að vísa til Trayvon Martin sem skotinn var til bana sama ár af George Zimmerman. Zimmerman var sýknaður þrátt fyrir að Martin hafi verið óvopnaður er hann var skotinn.
„Orð geta ekki lýst gleði okkar en heldur ekki sorg okkar því við vitum að Jordan hefur nú fengið réttlæti. Við vitum að líf hans og arfleið mun lifa áfram í öðrum en á sama tíma erum við sorgmædd að Michael Dunn lifi áfram. Við samhryggjum fjölskyldu hans, vinum og samfélaginu sem þurfa að þjást áfram vegna gjörða hans.“
Faðir Davis sagði jafnframt að dómurinn sýndi að Jacksonville væri dæmi um stað þar sem kviðdómur, sem samanstendur að mestu leyti af hvítum karlmönnum, geti komist að réttlátri niðurstöðu í máli sem tengist kynþáttum.
„Vonandi er þetta upphaf þeirra tíma þar sem við þurfum ekki lengur að sérstaklega athuga kynþátt kviðdómara,“ bætti hann við.
Saksóknari í málinu, Angela Corey sagði að Dunn yrði í fangelsi til æviloka.
„Þetta er sönnun á réttlæti,“ sagði hún um dóminn. „Við trúum því að réttlæti sé það sterkt hér að Michael Dunn muni aldrei yfirgefa fangelsið.“
Fyrri fréttir mbl.is