Telja lík stúlkunnar fundið

Hannah Graham hvarf þann 13. september.
Hannah Graham hvarf þann 13. september.

Lögreglan í Virginíu segist hafa fundið líkamsleifar sem hugsanlega séu af Hannah Graham, stúlku sem hvarf frá háskólanum í Virginíu 13. september. Hún var átján ára og á fyrsta ári í skólanum.

Lögreglustjórinn segir að enn eigi eftir að staðfesta að líkið sé af Hannah. Þúsundir sjálfboðaliða hafa tekið þátt í leitinni að stúlkunni. 

Einn hefur verið handtekinn vegna málsins. Sá er 32 ára karlmaður og hefur verið ákærður fyrir mannrán.

Lögreglan í Virginíu telur að maðurinn, sem heitir Jesse Leroy Matthew, tengist einnig morði á Morgan Harrington. Morgan var tvítug er hún var myrt árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert