Fara yfir landamæri til að berjast

Sprenging í borginni Kobane í Sýrlandi í dag, séð frá …
Sprenging í borginni Kobane í Sýrlandi í dag, séð frá tyrkneska landamærabænum Mursitpinar. AFP

Stjórnvöld í Tyrklandi ætla að hleypa Kúrdum yfir landamærin til Sýrlands sem hyggjast berjast gegn liðsmönnum hryðjuverkasamtakanna Ríki íslam í landamæraborginni Kobane. Litið er á þessa á ákvörðun sem pólitískan viðsnúning.

Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, sagði að viðræður um þetta standi yfir. 

Tugþúsundir hafa flúið átökin sem geisa í Kobane, en þar hafa sýrlenskir Kúrdar barist gegn íslömsku vígamönnunum.

Tyrknesk stjórnvöld greindu frá ákvörðun sinni skömmu eftir að bandarískar herflugfélagar vörpuðu vopnum til Kúrda í dag. 

Bandaríkjaher hefur einnig staðfest að hafa gert sex loftárásir skammt frá Kobane í gær og í dag. Einnig voru gerðar sex árásir í Falluja og Baiji sem breskar og franskar herþotur tóku þátt í. 

Kúrdar í Tyrklandi horfa yfir landamærin til Kobane.
Kúrdar í Tyrklandi horfa yfir landamærin til Kobane. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert