Sleppt úr fangelsi fyrir mistök

AFP

Lögreglan í Baltimore í Bandaríkjunum leitar nú að fanga, Rodriguez Purnell, sem var fyrir mistök sleppt úr fangelsi í ríkinu á föstudag. 

Purnell, sem var ákærður fyrir að skjóta Terrance Rheubottom, 27 ára, á síðasta ári, var haldið í fangelsinu á meðan hann beið réttarhalda í málinu.

Ekki komst upp um það að Purnell hefði sloppið fyrr en á sunnudag.

Jacqueline Davis, móðir Rheubottoms sagði í samtali við AP-fréttastofuna að fanginn yrði að finnast, og hver sá sem stæði fyrir því að hafa hleypt honum út ætti að vera rekinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert