Pilturinn er fangi í Roumieh-fangelsinu norður af Beirút en hann hefur ekki enn verið formlega ákærður. Hann hefur fengið nokkrar heimsóknir frá Danmörku og að sögn Oles Egbjerg Mikkelsens hjá dönsku utanríkisþjónustunni hefur konsúll Danmerkur í Líbanon heimsótt hann og veitt ráðgjöf. Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig um mál unga mannsins við fjölmiðla.
Faðir unga mannsins staðfestir að sonur hans sé í fangelsi í Líbanon en neitar því að hann tilheyri Ríki íslam. Pilturinn fæddist í Danmörku en er af líbönskum uppruna. Fjölskylda hans býr í Danmörku og Svíþjóð. Í fjölskyldunni er bæði að finna sjálfsvígsárásarmenn og grunaða hryðjuverkamenn og yfirvöld í Líbanon telja að pilturinn sé virkur í starfi Ríkis íslams, meðal annars í Líbanon.
Um eitt hundrað Danir hafa farið til Sýrlands til þess að berjast með íslamistum í borgarastyrjöldinni. Í ár hafa 25 hið minnsta farið þangað til að berjast, samkvæmt upplýsingum Berlingske frá dómsmálaráðuneytinu.