Syrgir fórnarlömbin, ekki soninn

Miðborg Ottawa var lokað á meðan lög­regluaðgerðin stóð yfir.
Miðborg Ottawa var lokað á meðan lög­regluaðgerðin stóð yfir. AFP

Móðir mannsins sem skaut hermann við stríðsminnisvarða í Ottawa í gær og réðst síðan inn í kanadíska þinghúsið segist vera sorgmædd dauða þeirra sem sonur hennar skaut en ekki vegna andláts sonar síns.

Suan Bibeau felldi tár er hún ræddi við AP-fréttastofuna í gegnum síma. „Getur maður útskýrt eitthvað eins og þetta,“ sagði hún. „Okkur þykir fyrir þessu.“

Maðurinn hét Michael Zehaf-Bibeau og var 32 ára. Lögregla skaut hann til bana eftir að hann skaut hermanninn Nathan Cirillo. Hermaðurinn var 24 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert