Óttast er að fleiri hafi smitast af ebóluveirunni í Malí, eftir að tveggja ára gömul stelpa sem var fyrsti staðfesti sjúklingurinn þar í landi, lést í dag. Stúlkan var nýlega komin til landsins eftir heimsókn til Gíneu, þar sem hún sýktist.
Stúlkan hafði sýnt einkenni, þar á meðal blóðnasir, þegar hún ferðaðist með rútu frá Gíneu til Malí, yfir þúsund kílómetra. Fjörtíu og þrír einstaklingar, þar á meðal tíu heilbrigðisstarfsmenn, sem höfðu verið í snertingu við stúlkuna hafa nú verið færðir í einangrun.
„Ástand barnsins í rútuferðinni er sérstakt áhyggjuefni, þar sem þar voru möguleikar á smiti á mörgu fólki,“ sagði talsmaður alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
Móðir stúlkunnar lést úr ebólu í Gíneu fyrir nokkrum vikum síðan, og var því verið að koma barninu til ættingja í Malí.
Yfir 4.900 hafa nú látist af völdum veirunnar, sem geisar harðast í Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne. Veiran smitast með blóði og líkamsvessum og ekkert bóluefni er til gegn henni. Tölur um hlutfall þeirra sem látast af völdum hennar eru nokkuð mismunandi, en yfirleitt er talað um að 2/3 þeirra sem sýkist af veirunni látist innan nokkurra daga.