Leystu 35 ára gamalt morðmál

Það tók kviðdóminn þrjár klukkustundir að komast að niðurstöðu um …
Það tók kviðdóminn þrjár klukkustundir að komast að niðurstöðu um sekt mannsins. Mynd/Wikipedia

Sextugur maður var í gær fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína fyrir 35 árum síðan. Maðurinn á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi eftir að kviðdómur kvað upp dóm sinn í gær eftir að hafa hugsað sig um í þrjár klukkustundir.

Lík eiginkonu hans fannst árið 1979. Að sögn lögreglu hafði hún verið stungin 100 sinnum með hníf. Ekki var hægt að sakfella manninn þegar málið kom fyrst til kasta lögreglu því sönnunargögn skorti. Árið 2009 var málið endurupptekið og með því að beita nýjustu tækni við að rannsaka lífsýni, sem ekki var til á þeim tíma þegar morðið átti sér stað, var hægt að sakfella manninn. Maðurinn hélt ávallt fram sakleysi sínu. 

Sjá frétt CBS

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert