Reyndi að myrða ungan son sinn

AFP

Kona frá Houston í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir tilraun til að myrða 5 mánaða gamlan son sinn sem lá á spítala. Einnig liggur konan undir grun um að hafa myrt barnunga dóttur sína sem lést á seinasta ári.

Konan, sem heitir Cynthia Wood og er 19 ára gömul, er í haldi lögreglu, en hún hefur neitað sök í málinu. 

Saksóknarar segja myndband úr öryggismyndavél á barnaspítalanum sem sonur hennar lá á hafa sýnt Wood setja hönd sína yfir munn barnsins. Þá stóð hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsinu konuna að verki. 

Drengurinn, sem var á spítala vegna öndunarerfiðleika, var endurlífgaður og er nú í forsjá barnaverndaryfirvalda ásamt 5 ára gamalli systur sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert