Aldraður hundur passar kettlinga

Boots er vinsæll hjá kettlingunum.
Boots er vinsæll hjá kettlingunum. Af vef Arizona Humane Society

Kettlingar sem bíða þess að verða ættleiddir í dýraathvarfi í Arizona hafa fengið fóstru. Nýjasti starfsmaður athvarfsins er hann Boots, aldraður, vingjarnlegur rakki.

Boots er einstaklega ástúðlegur og kettlingarnir elska hann.

En Boots gegnir stærra hlutverki en aðeins að veita kettlingunum ást og umhyggju. Samveran með honum eykur líkur kettlinganna á að finna nýtt heimili. Kettlingarnir læra að umgangast hunda og þar með geta þeir vel notið sín inn á heimilum þar sem eru hundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert