Stormur við suðurströndina

Búast má við austan hvassviðri eða stormi við suðurströndina í kvöld og nótt og geta vindhviður geta náð allt að 35-40 m/s. Einnig má búast við mikilli úrkomu suðaustan lands, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.

Vegir eru að mestu greiðfærir á Suðurlandi en hálkublettir á örfáum stöðum. Óveður er undir Eyjafjöllum og á Reynisfjalli. Vegir eru mikið auðir við Faxaflóa en hálka er á Holtavörðuheiði, í norðanverðri  Bröttubrekku og flughált á Laxárdalsheiði.

Hálka er á öllum helstu fjallvegum á Vestfjörðum en snjóþekja og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði.  Snjóþekja er einnig  á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.  Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka á vegum en snjóþekja á Dettifossvegi. Það er víða hálka eða hálkublettir á Austurlandi en greiðfært frá Eskifirði með suðausturströndinni að Öræfasveit en þar er nú óveður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert