Vilja ekki endilega eignast annað barn

Mun færri kínversk pör sóttu um að fá að eignast …
Mun færri kínversk pör sóttu um að fá að eignast annað barn en gert var ráð fyrir. AFP

Mun færri kínversk pör sóttu um að fá að eignast annað barn en gert var ráð fyrir. Slakað var á reglum á síðasta ári sem gilt hafa í mörg ár en samkvæmt nýju reglunum má par eignast tvö börn, svo framarlega sem annað foreldrið er einbirni.

Yfirvöld í Kína gerðu ráð fyrir að breytingin myndi hafa þau áhrif fæðingum myndi fjölga um rúmlega tvær milljónir á ári. Aðeins 700 þúsund pör sóttu um að fá að eignast annað barn og fengu 620 þúsund þeirra samþykki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert