Darling hættir 2015

Alistair Darling
Alistair Darling AFP

Alistair Darling, þingmaður Verkamannaflokksins og fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, ætlar ekki að bjóða sig fram til endurkjörs á næsta ári.

Darling bætist þar í hóp fleiri þungavigtarmanna hjá Verkamannaflokknum sem ekki ætla að bjóða sig fram í þingkosningum á næsta ári, segir frétt Guardian. Má þar nefna Jack Straw, Dame Tessa Jowell og David Blunkett.

Darling hefur verið þingmaður fyrir Edinborg síðan árið 1987 og er sennilega þekktastur fyrir störf sín í embætti fjármálaráðherra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert