19 ára handtekinn á Heathrow

Frá Heathrow flugvelli
Frá Heathrow flugvelli AFP

Ungur maður frá Coventry á Englandi var handtekinn á Heathrow-flugvelli á fimmtudaginn, grunaður um að tengjast hryðjuverkastarfsemi. Maðurinn er 19 ára gamall og var á leið til Jórdaníu þegar hann var stöðvaður. Sky News segir frá þessu.

Maðurinn er grunaður um að hafa verið á leið til Mið-Austurlanda til þess að ganga til liðs við hryðjuverkasamtök. Hann er nú í varðhaldi lögreglu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var handtakan skipulögð en fylgst hafði verið með manninum í einhvern tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert