Fékk kjötöxi í höfuðið

Wikipedia/Contributor

Þýskur karlmaður réðist á fyrrverandi kærasta dóttur sinnar í gær með kjötöxi í Vín höfuðborg Austurríkis. Kærastinn fyrrverandi, sem er 21 árs að aldri, kom að heimili mannsins og vildi ná tali af tvítugri dóttur hans. Þau fóru fljótlega að rífast og blandaði faðirinn sér í málið.

Fram kemur á fréttavefnum Thelocal.at að karlmaðurinn hafi í kjölfarið ráðist á kærastann fyrrverandi og hoggið til hans með kjötöxinni með þeim afleiðingum að ungi maðurinn fékk mikið sár á höfði. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús en mun ekki vera í lífshættu. Faðirinn var hins vegar handtekinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert