Ítalskur læknir sem smitaðist af ebólu í Síerra Leóne verðu fluttur með flugvél til Rómar til læknismeðferðar.
Heilbrigðisráðuneytið segir að um sé að ræða fyrsta ítalska ríkisborgarann sem smitist af ebólu. Hann er væntanlegur til Rómar í kvöld eða snemma í fyrramálið. Hann verður lagður inn á Lazzaro Spallanzani-sjúkrahúsið sem sérhæfir sig í smitsjúkdómum.
Læknirinn starfaðí fyrir góðgerðarsamtökin Emergency á heilsugæslu í Síerra Leóne. Yfir 5.000 manns hafa látist úr ebólu í faraldrinum sem nú geisar í Vestur-Afríku.
Heilbrigðisráðherra Ítalíu segir að lækninum líði ágætlega. Hann var ekki með hita eða önnur einkenni í nótt og í morgun gat hann borðað morgunmat, sagði ráðherrann.
Góðgerðarsamtökin segja að læknirinn hafi fundið fyrir einkennum sem tengjast ebólu en sé að öðru leyti við ágæta heilsu.