Sænskur leikskóli brann til grunna

www.norden.org

Leikskóli í hverfinu Östberga í suðurhluta Stokkhólms höfuðborgar Svíþjóðar brann til kaldra kola í gærkvöldi en mikill vindur gerði slökkviliðsmönnum erfitt fyrir að ráða niðurlögum eldsins. Fór svo að lokum að ákveðið var að láta bygginguna brenna til grunna.

Fram kemur á fréttavefnum Thelocal.se að miklar viðgerðir hafi átt sér stað nýverið á leikskólanum og að þeirri vinnu hafi lokið í síðustu viku. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast vegna brunans samkvæmt fréttinni. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir með hvaða hætti eldurinn kviknaði en talið er hugsanlegt að um íkveikju hafi verið að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert