Karlmaður á fertugsaldri gekk inn í andyr Háskólasjúkrahússins í Stavanger í Noregi á laugardagskvöldið og hleypti af skammbyssu. Hann var í kjölfarið yfirbugaður af starfsfólki sjúkrahússins.
Fram kemur á fréttavefnum Thelocal.no að maðurinn hafi hleypt af einu skoti sem fór í móttökuborð sjúkrahússins. Engum hafi orðið meint af vegna atviksins. Haft er eftir lögreglunni að hún telji að maðurinn hafi með þessu verið í örvæntingu sinni að biðja um hjálp. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu í Noregi.