Grýttir til dauða fyrir meinta samkynhneigð

AFP

Liðsmenn Ríkis íslams grýttu tvo karlmenn til dauða í Sýrlandi í dag eftir að hafa sakað þá um samkynhneigð að sögn mannréttindasamtaka. Fram kemur í frétt AFP að um fyrstu aftöku hryðjuverkasamtakanna fyrir meinta samkynhneigð sé að ræða.

Fram kemur í fréttinni að annar mannanna, sem hafi verið í kringum tvítugt, hafi verið myrtur í bænum Mayadeen í austurhluta Sýrlands. Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights segir liðsmenn Ríkis íslams hafa gefið þá skýringu að þeir hafi fundið myndbönd í síma mannsins sem sýndi hann „í ósiðlegum athöfnum með karlmönnum“.

Hinn maðurinn, sem var 18 ára að aldri, var grýttur til bana í borginni Deir Ezzor eftir ásakanir um samkynhneigð. Fullyrt hefur verið á samfélagsmiðlum að mennirnir tveir hafi beitt sér gegn Ríki íslams og að liðsmenn hryðjuverkasamtakanna hafi aðeins notað ásakanir um samkynhneigð sem ástæðu til þess að myrða þá.

Ennfremur segir í frétt AFP að samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hafi liðsmenn Ríkis íslams grýtt nokkrar konur til dauða fyrir að hafa stundað kynlíf utan hjónabands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert