Kom fyrir barnaklámi í tölvu eiginmannsins

Kona í Bandaríkjunum hefur verið dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa komið fyrir barnaklámi í tölvu eiginmannsins, í þeim tilgangi að reyna að koma honum í fangelsi. 

Konan hélt því fram fyrir dómi að hún væri að vernda börnin sín með því að reyna að koma eiginmanninum á bakvið lás og slá. Hún hlóð alls niður 40 myndum af barnaklámfengu efni á tölvuna hans. Fór hún svo með tölvuna hans til lögreglunnar. Rannsókn lögreglunnar leiddi hins vegar sannleikan í ljós, því myndirnar höfðu verið sóttar í tölvuna eftir að konan hafði hent manninum út af heimili þeirra í Pennsylvaníu eftir að hann hafði hótað að beita hana ofbeldi. 

Sjá frétt CBS-news

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert