Hótanirnar „ógn gegn þjóðaröryggi“

Framleiðslufyrirtækið Sony Pictures hefur hætt við að gefa út kvikmyndina The Interview vegna hót­ana sem hafa borist frá tölvuþrjót­um. Kvik­mynd­in fjall­ar morð á for­seta Norður-Kór­eu, Kim Jong-Un. Sky News segir frá þessu.

Fyrirtækið segir að ákvörðun um að hætta við sýningu á myndinni hafi verið tekin í kjölfar þess að stór kvikmyndahús í Bandaríkjunum hættu við að sýna myndina eftir hótanir hakaranna. Sony segist heldur ekki ætla að gefa út kvikmyndina á DVD eða sýna hana í sjónvarpi.

Tölvuhakkararnir til­heyra sama hóp sem hef­ur birt net­föng og stolið upp­lýs­ing­um frá Sony. Það mál er nú í rannsókn í Bandaríkjunum og hefur slóð hakkarana verið rakin til Norður Kóreu. Stjórnvöld þar neita að tengjast málinu á einn eða annan hátt. 

Hakkararnir kalla sig á ensku „Guar­di­ans of Peace“, eða Friðargæsluliðarn­ir.

„Við munum sýna ykkur á þeim stöðum og tímum sem The Interview verður sýnd, þar á meðal á frumsýningu, hversu slæm örlög þeir sem gera grín af hryllingi fá,“ kom fram í skilaboðum frá þeim. 

„Fljótlega mun allur heimurinn sjá hversu hræðilega mynd Sony Pictures Entertainment hefur gert. Heimurinn verður fullur af ótta.“

Í dag sagði talsmaður Hvíta Hússins, Josh Earnest að litið væri á árás tölvuhakkarana sem ógn gegn þjóðaröryggi og að „hlutfallslegt svar“ væri nú í skoðun. Hann sagðist jafnframt ekki vera í stöðu til þess að staðfesta að Norður-Kórea stæði á bakvið árásina. 

Heimsþekktir leikarar eins og Ben Stiller, Robe Lowe og Steve Carrell hafa mótmælt ákvörðun Sony á samfélagsmiðlum í gær og í dag. Sagði Stiller til dæmis að með ákvörðuninni væri vegið að tjáningarfrelsi í Bandaríkjunum. Steve Carrell tók í sama streng og sagði að dagurinn í gær hafi verið slæmur dagur fyrir „skapandi frelsi“. Sky News segir frá þessu.

Frumsýningu aflýst vegna hótanna

Auglýsingaplakat fyrir kvikmyndina The Interview, en þeir Seth Rogen og …
Auglýsingaplakat fyrir kvikmyndina The Interview, en þeir Seth Rogen og James Franco fara með aðalhlutverkin.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert