Kanadískur maður sem auglýsti eftir alnöfnu fyrrverandi kærustu sinnar, Elizabeth Gallagher, hefur fundið hina einu réttu. Hann er því á leið í platónskt ferðalag um heiminn með henni.
Hún viðurkennir að þetta hafi í fyrstu verið dálítið undarlegt - að fara í heimsreisu með ókunnugum en eftir að hafa talað við Axani klukkutímum saman í síma hafi henni snúist hugur. En unnusti hennar er ekki jafn hrifinn af ferðalaginu, að því er kemur fram í frétt Guardian.
Gallagher segir að hún og Axani fari sem vinir ekki par. Hún sé hrifin af unnusta sínum og samband þeirra sér alvarlegt. Þau séu að undirbúa íbúðarkaup og eigi hvolp saman.
Hún segir að þrátt fyrir að vera ekkert sérstaklega hrifinn þá skilji hann að hana langi í ferðalagið sem hefst þann 21. desember í New York. Þaðan liggur leiðin til Mílanó, Prag, París, Bangkok og Nýju Delí en lýkur þann12. janúar í Toronto.