Svaraði einungis konum

Fundurinn var eitt af síðustu verkum Obama áður en jólafrí …
Fundurinn var eitt af síðustu verkum Obama áður en jólafrí á Hawaii tók við. mbl.is/AFP

Á síðasta blaðamannafundi sínum á árinu í gær gerði Obama eitthvað sem aldrei hefur verið gert áður í Hvíta húsinu. Í stað þess að svar spurningum úr sal að handahófi virðist sem Obama hafi ákveðið að sýna jafnréttisbaráttunni sérstakan stuðning með því að svara einungis spurningum kvenkyns blaðamanna. 

Í upphafi myndbandsins hér að neðan segist Obama hafa fengið listann yfir þá sem hafa verið þægir og óþægir þetta árið og að hann muni nota hann til að velja þá sem fá að spyrja spurninga. Samkvæmt Washington Post var uppátækið skipulagt fyrirfram af fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, Josh Earnest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert