Sextán albanskir farandverkamenn fundust í vörubíl í Frakklandi á föstudaginn. Faldið fólkið sig inn á milli jólatrjáa og biðu eftir því að bíllinn myndi fara með ferju frá höfninni í Dieppe til Newhaven í Englandi.
Franskir tollverðir fundu fólkið í almennri leit. Ökumenn bílsins, tveir Pólverjar, hafa nú verið handteknir og munu þeir koma frammi fyrir dómara á morgun.
Albanarnir, fyrir utan tvo sem eru undir lögaldri, voru fluttir í varðhald.
Yfirvöld í England og Frakklandi hafa átt erfitt með að stöðva ólöglegan fólksflutning á milli landanna tveggja upp á síðkastið.